Skilmálar
Síðast uppfært: 9. október 2026
1. Seljandi
Vefverslunin www.polarspa.is er rekin af:
Áki Bifreiðaþjónusta sf.
Kt. 580285-0589
VSK-nr. 107062
Iðutúni 12, 550 Sauðárkrókur
Netfang: petur@polarspa.is
Sími: +354 899 5227
Félagið er skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins.
2. Almennt
Skilmálar þessir gilda um öll kaup á vörum og þjónustu í vefverslun PolarSpa. Með því að staðfesta pöntun samþykkir kaupandi skilmálana. Um viðskiptin gilda að öðru leyti íslensk lög, þ.m.t. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga, lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti.
3. Verð
Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. PolarSpa áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara og leiðrétta augljósar villur í verði eða vörulýsingum. Ef verð breytist eftir að pöntun hefur borist er kaupanda boðið að staðfesta pöntunina á nýju verði eða hætta við hana sér að kostnaðarlausu.
Til að sjá verð á heitum pottum þarf að skrá sig inn eða stofna aðgang, sem er kaupanda að kostnaðarlausu.
Rafmagnspottar fást í saltvatnsútfærslu gegn 300.000 kr. viðbótargjaldi, sem kemur fram í verði þeirrar útfærslu.
4. Afhending og uppsetning heitra potta
Afhending og uppsetning eru ekki innifalin í verði heitra potta. Kostnaður við afhendingu og uppsetningu fer eftir staðsetningu og aðstæðum á afhendingarstað, svo sem fjarlægð, aðkomu og undirlagi. Kaupandi fær tilboð í afhendingu og uppsetningu áður en gengið er frá kaupum og ber engan slíkan kostnað nema hann hafi samþykkt tilboðið.
Afhendingartími er samkvæmt samkomulagi við kaupanda. Kaupandi ber ábyrgð á að undirlag og tengingar (rafmagn eða hitaveita) séu tilbúin við afhendingu nema um annað sé samið.
5. Afhending aukahluta
Sendingarkostnaður vegna aukahluta reiknast í greiðsluferlinu og kemur fram áður en pöntun er staðfest. Vörur eru sendar eða afhentar eftir því sem kaupandi velur í greiðsluferlinu.
6. Greiðsla
Greitt er í gegnum örugga greiðslugátt vefverslunarinnar. Pöntun er afgreidd þegar greiðsla hefur borist.
7. Réttur til að falla frá samningi (skilaréttur)
Kaupandi sem er neytandi hefur rétt til að falla frá samningi innan 14 daga frá því að hann fékk vöruna í hendur, án þess að tilgreina ástæðu, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Tilkynning um að fallið sé frá samningi skal send á petur@polarspa.is.
Vöru skal skila í sama ástandi og hún var afhent og í upprunalegum umbúðum eftir því sem við á. Kaupandi ber beinan kostnað af því að skila vöru. Vegna stærðar og þyngdar heitra potta getur sá kostnaður verið verulegur og fær kaupandi upplýsingar um áætlaðan kostnað sé þess óskað.
PolarSpa endurgreiðir kaupverð, þ.m.t. upphaflegan sendingarkostnað, innan 14 daga frá því að tilkynning um að fallið sé frá samningi berst. PolarSpa er heimilt að halda eftir endurgreiðslu þar til varan hefur borist til baka. Kaupandi ber ábyrgð á rýrnun á verðmæti vöru sem rekja má til meðferðar umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eiginleika hennar og virkni.
8. Ábyrgð og gallar
Um galla fer samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Kvörtunarfrestur vegna galla er tvö ár frá afhendingu en fimm ár þegar söluhlut er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti, svo sem á við um heita potta.
Kaupandi skal tilkynna um galla án ástæðulauss dráttar eftir að hann varð hans var. Ábyrgð nær ekki til tjóns sem rekja má til rangrar notkunar, skorts á viðhaldi, rangrar efnanotkunar í vatni eða uppsetningar sem ekki er framkvæmd af PolarSpa eða í samræmi við leiðbeiningar.
9. Persónuvernd
Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu PolarSpa.
10. Ágreiningur og lögsaga
Komi upp ágreiningur reyna aðilar fyrst að leysa hann með samkomulagi. Neytendur geta einnig leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Rísi mál út af viðskiptunum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra.