Persónuvernd
Síðast uppfært: 9. október 2026
1. Ábyrgðaraðili
Áki Bifreiðaþjónusta sf., kt. 580285-0589, Iðutúni 12, 550 Sauðárkrókur, sem rekur vefverslunina www.polarspa.is („PolarSpa“, „við“), er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með í tengslum við vefverslunina. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á petur@polarspa.is eða í síma +354 899 5227.
Við vinnum með persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðina (ESB) 2016/679.
2. Hvaða upplýsingum er safnað
- Samskiptaupplýsingar: nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang, t.d. þegar þú stofnar aðgang, pantar vöru eða sendir fyrirspurn í gegnum „Hafa samband“.
- Pöntunarupplýsingar: vörur, verð, afhendingarstaður og greiðslustaðfesting. Kortaupplýsingar fara beint til greiðsluþjónustuaðila og eru ekki geymdar hjá okkur.
- Aðgangsupplýsingar: netfang sem notað er til innskráningar.
- Notkunarupplýsingar: upplýsingar um tæki, vafra, IP-tölu og hvernig vefurinn er notaður, sem safnað er með vafrakökum og sambærilegri tækni.
3. Tilgangur og heimild vinnslu
- Afgreiðsla pantana og tilboða: til að afgreiða pantanir, gera tilboð í afhendingu og uppsetningu og veita þjónustu. Heimild: efndir samnings.
- Notendaðgangur: til að stofna og viðhalda aðgangi, m.a. svo þú getir séð verð á heitum pottum. Heimild: efndir samnings.
- Bókhald: til að uppfylla skyldur samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald. Heimild: lagaskylda.
- Markaðssetning og greining: til að mæla árangur auglýsinga og bæta vefinn. Heimild: samþykki, sem þú veitir í vafrakökuborða og getur dregið til baka hvenær sem er.
- Öryggi: til að verjast svikum og misnotkun. Heimild: lögmætir hagsmunir.
4. Vafrakökur
Vefurinn notar nauðsynlegar vafrakökur til að hann virki, t.d. fyrir körfu og innskráningu. Með samþykki þínu notum við einnig vafrakökur til tölfræði og markaðssetningar, þ.m.t. Meta Pixel (Facebook og Instagram) og Google (Google Ads og Google Analytics). Þú getur breytt vali þínu í vafrakökuborðanum eða í stillingum vafrans.
5. Miðlun til þriðju aðila
Við seljum ekki persónuupplýsingar. Við miðlum upplýsingum eingöngu til aðila sem vinna fyrir okkur eða þegar lög krefjast þess:
- Shopify – hýsing vefverslunar, aðgangar og greiðsluferli.
- Greiðsluþjónustuaðilar – vinnsla greiðslna.
- Meta Platforms og Google – mælingar og auglýsingar, aðeins með samþykki.
- Flutnings- og uppsetningaraðilar – afhending og uppsetning vara.
Sumir þessara aðila eru staðsettir utan Evrópska efnahagssvæðisins, svo sem í Bandaríkjunum. Í þeim tilvikum byggir miðlun á viðurkenndum heimildum, svo sem stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB eða gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna.
6. Umsagnir
Umsagnir á vefnum eru birtar beint frá Google og skrifaðar af notendum Google. PolarSpa safnar ekki umsögnum sjálft og vinnur ekki með persónuupplýsingar þeirra sem skrifa þær.
7. Varðveisla
Pöntunar- og bókhaldsgögn eru varðveitt í sjö ár í samræmi við lög um bókhald. Aðrar upplýsingar eru varðveittar á meðan aðgangur er virkur eða á meðan þeirra er þörf vegna þess tilgangs sem þeim var safnað í, og þeim síðan eytt.
8. Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að persónuupplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka eða andmæla vinnslu, fá upplýsingar fluttar til annars aðila og draga samþykki til baka hvenær sem er. Beiðnir má senda á petur@polarspa.is eða leggja fram á síðunni GDPR beiðnir. Við svörum beiðnum innan eins mánaðar.
9. Kvartanir
Telur þú að vinnsla persónuupplýsinga um þig brjóti gegn lögum getur þú sent kvörtun til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
10. Breytingar
Við kunnum að uppfæra þessa stefnu. Uppfærð stefna er birt á vefnum með nýrri dagsetningu.