
1500 lítra heitur pottur frá PolarSpa er fjölskylduvænn pottur fyrir 6 manns, með rúmgóðum sætarýmum, hámarks þægindum og öllum þeim eiginleikum sem gera upplifunina einstaka.
Pottinum fylgja tvær 2-hp nudddælur, loftdæla og öflug hringrásardæla sem tryggir jafnt flæði. Gecko stjórnborðið er 5" litaskjár sem er einfaldur í notkun og hægt er að tengja við app í síma – þar sem þú stýrir bæði hitastigi, ljósi og stillingum pottsins.
Klæðningin er úr PVC viðhaldsfríu efni, skelin er smíðuð úr trefjum og acrylic. Burðargrindin er smíðuð úr ryðfríum prófíl – byggð til að endast. Þreföld einangrun, frostvarnarkerfi og ozone-hreinsikerfi tryggja að potturinn sé alltaf heitur og hreinn, með lágmarks viðhaldi og hagkvæmum rekstri.
Þetta er frábær fjölskyldupottur – rúmgóður nuddpottur sem gefur fallega lýsingu og setur stemningu í garðinn allan ársins hring.
Tæknilegar upplýsingar